Um daginn benti viðskiptavinur mér á að það gæti verið sniðugt hjá mér að blogga. Til að miðla fróðleik um græna hársnyrtingu. Ég ákvað að taka hana bara á orðinu og skella í blogg.
Ég ætla að byrja á að miðla "leydnarmálinu" um eplaedikið. Ég minnist aldrei of oft á það svo hér kemur uppskrftin að glansandi hári og gott ef ekki heilbrigðum hársverði í leiðinni. Þetta verður allt til við undra eplaediksins sem kemur réttu sýrustigi á hár og hársvörð.
1. Þvoið hárið með sjampói og skolið vel úr.
2. Blandið um það bil 20 ml af lífrænu eplaedik í 60 ml vatns og hellið yfir hárið. Nuddið til að þetta dreifist vel.
3. Bíðið í 3-5 mín.
4. Skolið vel.
5. Setjið næringu og skolið.
Annars var ég á ráðstefnu og sýningum um Græna hársnyrtingu í dag sem var yndislegt. Blogg um það er væntanlegt von bráðar.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli